Jæja í gær tókst mér að fá migreniskast, í fyrst sinn í tæpt ár. Ég vil kenna músíkinni í Magasín um.... þeir voru nefninlega að skipta um músík sem þeir spila allan daginn.... ég held þeir hati starfsfólkið sitt!!! Þar fór heill eftirmiðdagur í að liggja og slefa eftir að hafa tekið migrenilyfin, í morgun vaknaði ég svo eins og ég hafi verið á hörku djammi í gær, þunn og glær.´
Eftir vinnu í dag var ég svo vígð inní kaffihúsaklúbb íslenskra Amager-kvenna, Hrafnhildur konan hans Viðars (vinafólk úr Borgarnesi) bauð mér að koma með í kaffihúsaklúbbin sinn, þær hittast alltaf nokkrar og prófa alltaf ný kaffihús á Amager, þetta eru rosa hressar stelpur, reyndar allar soldið mikið eldri en ég og eiga allar krakka en það er bara betra þá hittumst við bara á skynsamlegri tímum :) Mér finnst alveg frábært að vera tekið svona vel þrátt fyrir að eiga svona fátt sameiginlegt með þeim, og mér fannst ég alls ekkert vera útúr..... rosa fjör!!!
Gummi kláraði verkefnið sitt í dag svo hann er á Torsdagsbar niðrí skóla með Heiðu og Ásu og fleirum að slappa aðeins af, það er enginn smá léttir að hann sé búinn með þetta verkefni. Núna hefur hann alla helgina til að slappa af og sofa áður en hann fer að mæta í tíma á mánudaginn..... og næsta verkefni byrjar :)
Á Sunnudaginn flýtum við klukkunni svo þá verður lengur bjart hjá okkur, þá getur maður farið að hjóla heim í byrtu, alveg æðislegt! En þá verður reyndar tveggja tíma munur á milli íslands og danmerkur.... en það er jú eithvað sem við getum lifað með :)

<< Home