Mamma og pabbi voru hjá okkur seinustu viku, við leigðum bílaleigubíl svo það gaf okkur fleiri möguleika, enda var veðrið ekki uppá marga fiska. Við fórum m.a. í bíltúr til Malmö, náðum í Preben og höfðum með honum huggulega kvöldstund og svo keyrðum við bara um og sáum Kaupmannahöfn úr öðru sjónarhorni... ekki svo að skilja að við höfum setið í bílnum alla vikuna, við fórum líka í verslunarferðir, löbbuðum um bæinn, en veðrið var mjög leiðinlegt svo mest gerðum við af því að hafa það huggulegt.
Núna er Ásta hjá okkur, hún er með sýningu í Oksnahallen, það er nefninlega fashion week í kaupmannahöfn núna. Við erum að fara í rosa flott partý í kvöld sem er til heiðurs þeim íslensku hönnuðum sem koma og taka þátt í fashion week. Ég fékk svo þann heiður að vera boðið að vera sölukona fyrir Ástu þessa helgi því hún þarf að vera í New York á laugardaginn.... bissí kona!! Mér finnst það ekkert smá spennandi að fá að prófa það.
Það var ekki mikið meira í bili.
Kram

<< Home