föstudagur, febrúar 24, 2006

Já ég held það nú!!! tölvunördið mætt á svæðið!! breytti lúkkinu, enda kominn tími til, og var ekki lengi að finna útúr því hvernig ég set kommentakerfið mitt inná nýju síðuna, hvernig ég set linkana inn og hvernig maður gerir tab á HTML forritunarmáli.
Við erum alveg búin á því hjónakornin, búin að vera að undirbúa afmælisveislu í kvöld, vorum bæði í skólanum í allan dag. En okkur er búið að takast að töfra fram marens og súkkulaðitertur og skreyta með blöðrum og taka til.... meira verður ekki gert í dag enda held ég að Gummi sé sofnaður hérna við hliðina á mér, enda er kallinn orðinn svo gamall, 25 ára þegar hann vaknar næst!!
knús í bili

   |