þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Snögt ríport:
Á föstudaginn var pókerkvöld hérna heima hjá okkur, Gummi, Gulli, Maggi, Viðar og einhverjir gerðu mig útlæga af heimili mínu. Svo ég fór til Rakelar (konan hans Magga) ég fékk í fyrsta skipti að vera barþjónn, hún var nefninlega að vinna á fredagsbarnum í skólanum sínum en svo fórum við heim til hennar og höfðum það huggulegt.
Á laugardaginn fórum við í Innflutningspartý hjá Andra og Siggu, ekkert smá glæsileg íbúð það!!
Í dag er vika í skil á fjármálafræðiverkefninu.... og við erum búin að skrifa svona ca. 10 síður í alt!! ekki nógu gott, en við vinnum bæði bestu undir pressu svo það verður bara tekið á því núna.
Gummi á afmæli á föstudaginn, verður 25 ára kallinn!! Svo við ætlum að halda afmælisveislu hérna heim, kökur og fínerí. Ef þið sjáið ykkur fært að koma frá íslandi þá eruð þið auðvitað velkomin... þetta er jú stórafmæli :)
later

   |