Um daginn fórum við Gummi ásamat öllu Íslendingum í Kaupmannahöfn á Múgison tónleika, og á eftir fórum við á rall með Magga og Rakel. Það kvöld var vægast sagt vel heppnað!Því miður var engin myndavél með í för það kvöldið, en ég bæti það upp með að setja inn myndir af deginum í dag. Við Gummi tókum nefninlega smá Jule hygge á þetta og fórum á Nødeknækkeren (Hnotubrjótinn) í tívolí, það var rosa gaman, konunglegur ballet og sinfonía og læti.
Við gátum ekki tekið myndir á meðan sýningunni stóð, en hér er Konsertsalurinn endurnýjaður.
Í andirinu er víst eithvað stærsta saltvatns fiskabúr í Skandinavíu... eða heimi eða eithvað.... við leituðum og leituðum að Nemó en fundum hann hverg, hann hefur verið að fela sig í alvöru kóralrifunum sem er þarna, þetta var allavega rosa flott!!Svo heimsóttum við jólasveinaland:

Til að fullkomna jólastemninguna fengum við okku eplaskífur og glögg/heitt kakó

Í kvöld tók ég svo jólaskrautið uppú geymslunni, ætli maður verði ekki að fara að vera heimilislegur og jólaskreyta.... annars veit ég ekki hvort það taki því, maður er svo lítið heima, það er allt á 120 í skólanum, verkefni á verkefni ofan og próf og vesen. Ég misti starfsmann núna um mánaðarmótin svo það er líka nóg að gera í vinnunni, mér skilst að jólaverslunin í Danmörku sé svolítið dreifðari heldur en hún er í Reykjavík. Við erum strax farin að fynna fyrir aukningu, svo það er rosa gaman!!
Ég veit ekki hvort ég var búin að segja öllum að ég kem til íslands að kvöldi 30. desember og fer aftur 4. janúar... svo það verður stutt stopp! Vonast til að ná að hitta flesta og gera allt ;)
Knús í bili

<< Home