Ég er búin að taka mér þokkalega blog pásu, en ég lofa nú ekki að þetta batni héðan af.
Mjög margt er búið að gerast síðan síðast, ég fór í miðsvetrapróf og gekk ágætlega, ég er búin að skila biljón og þremur verkefnum. Það er búið að breyta búðinni og gera hana "Jens-legri" ég er ekkert smá sátt við það. Það er orðið uppselt á Robie Williams tónleikana og við fengum ekki miða :( Við erum búin að taka ákvörðun um að halda jólin í danmörku, en ætlum þó að kíkja stutt yfir áramótin, komum 30. des.
Annars er maður bara búinn að standa á haus í öllu sem þarf að gera, vona að næsta önn verði aðeins tjillaðri með skólann. Hef ekki tíma fyrir alla þessa hópavinnu.
Núna fer vonandi jólaösin að byrja, það er allavega allt orðið jólaskreytt og fínt niðri á Striki og jólatívolí er búið að opna.
God Bless!!

<< Home