laugardagur, ágúst 20, 2005

Maður er alltaf að afsaka sig hvað er langt síðan maður hefur skrifað..... svo ég ætla að sleppa því núna.
Ég fór til Íslands fyrir sotlu síðan (er búin að missa tímaskyn) það var alveg æðislegt að hitta fjölskyldu og vini, mér tókst að fara í þrjá sumarbústaða um eina helgi... það var hert öðru betra... það var alveg æðislegt að hitta aftur gömlu vinkonurnar(já þið eruð orðnar gamlar) í góðum gír, og heilsa uppá ættfólkið í gúúúdddí fíling... og Búðarklettur var sko málið Mæja!!!
Já mér tókst að framkvæma annsi margt!!
Snorri Freyr kom svo með mér út og var í viku, hann fékk blessunarlega tvo daga á ströndinni eftir að hafa þurft að hlusta á allt vælið í mér og þurft að koma með mér í vinnuna.
Ásta mamma Tönju var hjá okkur Snorra Frey í góðum gír.... minna má nú segja!!!
Svo þegar hann fór kom Elva, hún er að fara í læknisfræði hérna úti, en hún fór í busaferð strax í morgun svo ég er aftur orðin ein.
Slæmu fréttirnar eru þó að hjólinu mínu var stolið!! Ég er búin að leita að því um allt hverfi... en ég er farin að halda að öll von sé úti!!.... en eins og maður reynir að segja við sjálfan sig: "shit happens".
Magga er að koma út 4. sept. og ég hlakka mikið til, hún komst inn í nám sem hún sótti um, svo ég vona að þetta gangi upp hjá henni núna!!
Heiða vinkona er farin til íslands endanlega, hún er að byrja í Landslags arkitek!! hún kíkti við í einn kaffibolla þegar hún millilenti hérna í köben. Svo ég fékk aðeins að sjá hana. Frekar erfit að hún sé farin!!
En annars er allt gott að frétta af mér, ég var úti í kvöld, fór á tónleika þar sem Haukur var að spila, enduðum í svaka fjöri og nú er klukkan orðin 4 svo það er kominn háttartími...
Góða nóttt

   |