Við erum sko heldur betur að fá framlengingu á sumarið... veðrið er æðislegt!! Í gær skelltum við Gummi okkur til Malmö eftir annasama viku. Það var ágætt að koma í svona afslappað umhverfi burt frá öllu, og sitja á úti kaffihúsum í sólinni!!
Í seinustu viku voru Stína og Óli hjá okkur, það var rosa gaman, við gerðum voða lítið annað en að slappa af og borða... það er ágætt inná milli. En annars er ég á fullu í verkefnum og sé ekki alveg fyrir endan á því, en maður gerir sitt besta.... betra verður það ekki!!
Við erum að skipuleggja ísnótt á menningarnótt, það er svaka viðburður í galleríinu hennar Sossu (myndlistamálara), Ásta verður með fötin sín og við með skartgripina okkar, erum búin að fá styrki og læti, svo þetta verður svaka flott. Mitt verkefni er meðal annars að safna módelum, þ.e. ferskum venjulegum stelpum, svo endilega hafið samband ef þið hafið tíma!!
Bæ í bili...

<< Home