Sælt veri fólkið!!
Þá eru berlínarbollurnar komnar aftur úr fríinu!! Það var ekkert smá gaman að fara svona í burtu. Berlín er mikil stórborg og það var margt að skoða, en það var mjög gaman að víkka sjóndeildarhringinn á þennan hátt.
Sjóið á menningarnótt, þ.e. Is nat, gekk rosalega vel, var algjört hitt!! Ég set inn myndir af því þegar ég hef tíma. En núnna fer öll mín orka í að lesa og undirbúa mig undir miðsvetrar próf.
Snorri Freyr kemur á morgun til Köben, en hann er að fara í haustfrí með bekkjarfélögum sínum.
Lovísu dóttir var skýrð um daginn, heitir Guðný Helga.... bara svona svo þið séuð með á nótunum!!
Annars er allt gott að frétta af okkur, getum ekki verið annað en ánægð þegar svona mikil gleði ríkir hér í danaveldi vegna nýfædds erfingja.

<< Home