föstudagur, september 30, 2005

Já semsag, ég er að fara til Berlínar 15.-19. október, sem hittir mjög illa á, því þá koma Stína og Óli frá Osló. Tippikal, þegar þau loksins drösla sér til Danmerkur þá verð ég ekki heima!! En ég næ þeim þó áður en þau fara til Osló, sem er strax í næstu viku!!
Eldhúsloftið og veggir fóru að leka, hérna fyrir um það bil viku, og við erum búin að rífa niður eldhússkápana (2 af þeim) og allt eldhúsið er í rusli!! það góða við þetta er að lyktin þarna inni er svoleiðis að ég missi matarlistina hvert sinn sem ég kem þar inn.... eða eru það kannski slæmar fréttir!!
Elva bauð okkur í mat í gær, og bauð uppá fisk.... mmmmm þetta var ekkert smá gott, takk fyrir okkur!!
Það er vitlaust að gera í skólanum hjá mér og vinnuni.... og þett á eftir að versna fram að haustfríi!! En svo næ ég að slaka á í Berlín... En svo reyndar strax í vikunni þar á eftir er ég í miðsvetraprófum.....
En maður verður bara að reyna að njóta þess.... ekki hægt að stressa sig endalaust!

   |