Allt komið á fullt aftur.... skóli skóli skóli.... nema hvað, skólanum er aflýst hjá mér í gríð og erg, tímanum á föstudaginn, tímanum í dag og tveir tímar á morgun.... allt aflýst, ætli þeir ætli að aflýsa brautinni minni?! þeir skutu sig nefninlega í fótinn í haust þegar þeir ákváðu að taka inn 600 nemendur í stað þeirra 500 sem þeir eru vanir að taka inn og svo kom í ljós að hlutfall þeirra sem hætta í byrjun skólaárs var mikið lægra en hefið verið, það er stofuskortur í skólanum svo okkur er kastað soldið útum allan bæ, svo fá nokkrir að sitja á gólfum og uppá ofnum.... ekki mjög gaman!!
En ég er bara heima að læra... svo ég sé undirbúin ef ske kynni að ég þyrfti að fara í tíma!
Við fórum í skýrn og tilheyrandi veislu á laugardaginn. Ingibjörg Huld og Bernhard voru að skýra sitt fyrsta, Tobias Flóki Snizek var snáðinn nefndur. Haldin var mikil og glæsileg veisla. Þeim degi verður seint gleymt.
Eftir veisluna fórum við á pöbbana með kallalið fjölskyldu Ingibjargar.... það endaði í miklu fjöri!!
Ég gerði góðan díl og seldi símann minn og keypti nýjan Sony Ericsson K700i, einn sá fullkomnasti, þurfti bara að bæta við 299 krónum. Frekar sátt, var komin með soldið leið á gamla símanum..... ég notaði tækifærið og skipti um símanúmer, nýja gsm númerið mitt er því: 27510123 skrfaðu það hjá þér!!
Jæja ætla að fara að hjálpa Gumma að elda
Later

<< Home