miðvikudagur, október 13, 2004

Búin að vera í haustfríi alla þessa viku, það er búið að vera svaka næs. Við erum búin að sletta úr klaufunum ásamt því að slappa af. Gummi er búinn að vera að lakka gluggana... svo við komum ekki aftur í skólann með fullt hús af heilasellum.... þær eru allar steindauðar. Það er kallt úti og ekki hiti á ofnum svo maður er ekki spenntur fyrir að opna glugga í of langan tíma.
I gær fórum við með Ástu vinkonu, sem er að læra arkitekt í Århus, í leiðangur um Kaupmannahöfn til að finna galleri Nordlys sem var að opna... þetta er gallerí sem tvær íslenskar konur opnuðu í byrjun september, ýmsir íslenskir listamenn sýna verk sín þarna og þar á meðal hún góðvinkona okkar Ásta Guðmundsdóttir, fatahönnuður. Mér þykir þetta alveg frábært framtak... gaman að skoða og ég mæli bara eindregið með að fólk kíki á þetta!!
Gummi er núna með Helga á fótboltaleik, Danmörk-Tyrkland....það verður allt vitlaust í bænum í kvöld...!! Ég ætla bara að vera heima að horfa á þetta... enda var ekkert auðvelt að fá miða á þetta.
Svo er það bara að njóta þess sem eftir er af fríinu, byrjum í skólanum aftur á mánudaginn.

   |