dúddírú.... maður er alltaf jafn duglegur að skrifa á bloggið sitt....
Ég er nú samt alveg búin að hafa nóg að gera, við erum búin að fá mikið af gestum núna í byrjun september, það var mikið fjör, en það er allt saman farið að róast núna. Enda búið að vera mikið að gera í skólanum, það er hlaðið á okkur verkefnum fyrir efterårsferien til að fá fólk til að hætta... það er nefninlega ekki nóg pláss fyrir alla, mikið klúður í stundarskránum en þetta er allt að smella saman.
Ég er búin að kynnast hópnum mínum aðeins betur, og við vinnum bara vel saman. Við erum búin að skila 4 verkefnum við erum samt bara búin að fá eitt til baka, fengum 9 sem þykir ágætt fyrir fyrsta verkefni. Spennandi með restina!!
Við Gummi tókum okkur loksins til og hengdum upp allar myndirnar sem lágu inní skáp... enda kominn tími til. Gummi setti líka upp lampa yfir eldhúsborðið inní eldhúsi... frekar flott!! Svo ætlum við að reyna að gera baðherbergið upp í efterårsferien sem er í næstu viku. Við erum nú þegar búin að rífa sturtuklefan. Þetta er mjög í anda þess hvað er að gerast hérna í hverfinu, því loksins eru nágrannahúsin búin að losa sig við þessa stilassa sem eru búnir að gera mér lífið leitt.
Gummi var á Íslandi seinustu helgi, skellti sér á lokahófið hjá golfklúbbnum sínum. Það var víst mikið fjör og mikið gaman. Ég var heima því við (ég og hópurinn minn) vorum saman alla helgina að gera verkefni, ég verð nú að segja að ég skemmti mér líka bara ágætlega.
Við erum búin að bóka okkur ferð til Berglindar og Arnar. Fyrir þá sem ekki vita eru þau flutt til Shefield á Englandi. Við förum til þeirra 26. nóvember til 29. nóvember.... ég hlakka ekkert smá til. Jú og svo erum við líka búin að bóka okkur ferð til íslands 16. desember, við verðum samt að fara aftur heim 2. janúar því ég fer í próf 3. janúar og Gummi á að byrja á einhverju verkefni þá.
Við höfum það gott, ég er soldið hissa á sjálfri mér, í allt sumar er ég búin að kvíða haustsins og vetursins. En núna þegar það er farið að kólna þá finnst mér það alveg yndislegt.... get ekki úskýrt það en eitt er víst að haustið hér er allt öðruvísi en íslenska haustið.
Ég tók svona eldabuskuæði í gær og í dag, í gær bjó ég til blómkálsgratín a la mamma og í dag bakaði ég gulrótaköku a la Edda frænka svo nú eigum við lager af gulrótaköku ef einhverjum langar að kíkja í kaffi!!
Núna ætlum við að kúra okkur uppí sófa og hafa það huggulegt
Later....

<< Home