Jæja.... ég er enn á lífi.... bara alveg búin að steingleyma að skrifa á bloggið mitt. Enda hef ég haft nóg fyrir stafni. Ok. Byrjum á byrjun: seinustu tvær vikurnar í ágúst fóru í að taka þátt í intro dagskrá fyrir Ha(alm.) Þar kynntist ég 80 af 600 nemendum sem voru að byrja á sömu braut og ég. Við lærðum um skólann og námið frá lengra-komnum nemendum og svo fórum við í 4 daga ferðalag útá Sjáland (Hundige). Þar var tjillað í bjór, farið á ströndina, stangast á við geiturnar og svo voru ýmiskonar þemakvöld. Svo strax 1. sept. hófst alvaran, lestur og fyrirlestrar og hópverkefni. Okkur var skipt í hópa sem við eigum að vera í í öllum fögum og öllum verkefnum. Ég er mjög ánægð með minn hóp, enn sem komið er, við erum aðeins búin að vinna eitt verkefni saman, en það gekk mjög vel. Mér líkar mjög vel við mig, hollið mitt (40 manns) heldur mikið saman, svo maður er alltaf í góðum félagsskap. Við fórum seinasta fimmtudag út að borða saman og svo á Torsdagsbar á Nexus, í dag ætlum við þær fáu stelpur sem eru í hollinu að hittast heima hjá einni og halda smá stelpukvöld áður en haldið verður á Nexus.
Þessi helgi stefnir í mikil læti, 4 Verzló vinir Gumma og Helga Pálls eru að koma í kvöld og einnig eru Ása og fleiri skvísu að koma með sömu vél, svo það verður ekki undan því komist að vera á þeytingi þessa helgina. Næstu helgi fáum við líka gesti, en það verður mikið afslappaðra, Hjálmur og Rósbjörg frændfólk Gumma eru að koma í afslöppunarferð.
Ég á frí á flestum Fimmtudögum, svo nú sit ég heima og reikna heimaverkefni, svo ætla ég að þrífa og stússast og drífa mig svo í fjörið!!

<< Home