sunnudagur, ágúst 15, 2004

Þá er maður kominn aftur heim, það var æðislegt í eyju það var yndislegt að hafa það kósý heima með fjölskyldunni og það var frábært að hanga með vinkonunum.... og svo var Gummi nátlega líka þarna... og hvílíka bongó blíðan, hátt uppí 30 stiga hiti og sól..... gerist ekki betra!!

Nú hefjast nýjir tímar, á morgun byrja ég í intro vikunni í skólanum, þetta er tveggja vikna próses þar sem ég er að kynnast krökkunum, náminu og skólanum og svo verður farið í 4 daga ferðalag uppí sveit... er ekki enn búin að fá allar upplýsingar um það, en það verður án vafa magnað!!

Pabbi og Hans eru að koma til mín á fimmtudaginn og verða þangað til á laugardaginn, þeir eru að fara á Gullsmiða sýningu í Bella Center. Svo kemur Gummi út á laugardagskvöldið.... loksins ein í kotinu!!

Jæja nú ætla ég að fara að setja fleiri myndir inná síðuna... enjoy!!

Later

   |