sunnudagur, júlí 25, 2004

Mamma og pabbi eru farin heim núna, fóru á föstudaginn. Við höfðum það svaka gott, fórum á ströndina á Dragør og svo tókum við bílaleigubíl í tvo daga og keyrðum um allt Sjáland! Ekkert smá skrítið að setjast uppí bíl hérna.
Björn vinur Snorra Freys kom á föstudaginn, svo við erum búin að hafa það gott um helgina.... og fjörið heldur áfram fram á miðvikudag, þá förum við heim og ég skelli mér til Eyja!!
Ég vinn seinasta vinnudaginn minn á þriðjudaginn það verður ekkert smá gaman að breyta til.... svo kemur í ljós seinna hvort ég fái hlutastarf með skólanum... en ég er ekki enn viss um að það sé sniðugt... maður verður bara að prófa sig áfram. Á miðvikudaginn fæ ég endanlega staðfestingu um hvort ég komist inn í skólann....
GAMAN GAMAN

   |