Ég er búin að vera bloglægð undanfarið... en svona er þetta bara, stundum er ég í stuði, stundum ekki.
Ég fór í 10 daga vinnuferð til Íslands, fékk heldur betur fjármálakrísu beint í æð, ótrúlegt að upplifa þetta ástand.
Í gær fór ég í síðasta skólatímann minn. Ef ég mennta mig ekki meira, þarf ég aldrei aftur að sitja í tíma. Núna er ég að lesa undir próf sem eru 22. okt og líklega 27. eða 28. okt. þegar það er búið á ég bara ritgerðina ógurlegu eftir.
Stína og Óli koma í heimsókn 28. október, ég hlakka ekkert smá til, ég verð komin í frí, svo við getum gert það sem okkur langar!! Svo fá þau líka að vígja nýja svefnsófann okkar... jei!!
En ég held að stóru fréttirnar séu að Sara Jóna vinkona er búin að setja dag á brúðkaupið sitt... það er orðið að veruleika, við erum orðnar gamlar: farnar að skipuleggja brúðkaup!!
Ég er að fara til Íslands 1. nóvember að njóta lengsta jólafrís sem ég hef átt síðan áður en ég byrjaði í leikskóla, hver ætlar að njóta þess með mér?
heiallíúbba

<< Home