mánudagur, júlí 07, 2008

Sumarið er heldur betur tíminn!!

Við erum búin að fara á tvö ættarmót, halda uppá afmælið hennar Berglindar, njóta sveitasælunnar í Brautarholti, hitta Móu og hennar fólk, vinna eins og vitleysingar (helst ég þá), spila golf (mest Gummi).
Ég á enn eftir að fara á fótboltaleik hjá Fjölni! fara í afmæli hjá Tómasi, halda uppá mitt eigið stórafmæli, heimsækja Stínu frænku Vestur, fara á Þjóðhátíð, fara austur, taka gott fimmtudagstjútt, fara í makkarónur til Eddu frænku og öruglega margt fleira sem ég man ekki akkurat núna.
Vonandi næ ég að gera þetta allt og helst meira áður en ég fer aftur til Danaveldisins seinast í ágúst!!
Ég verð mjög löt að skrifa núna í sumar, enda umkringd af flestu því fólki sem les þetta Blog.

Gleðilegt sumar elskurnar!!

   |