mánudagur, september 08, 2008

Jáb, þá er sumarið búið... svona að nafninu til...
Við komum heim í Danaveldi 31. ágúst, blíðviðri tók við okkur, okkur til mikillar gleði, við vorum ekki lengi að taka hjólin fram og nú erum við bara að njóta þess að vera sameinuð undir einu þaki.
Skólinn er byrjaður hjá mér, þetta verður rosalega þægilega auðveld önn, það er ágætt að fá smá breik áður en ég á að byrja á ritgerðinni miklu.
Við erum búin að taka út vikuskammtinn okkar af hámenningu, fórum á New York City Ballet í Tívolí og R.E.M tóleika í Parken, svo það gerist ekki betra.
Maður er ekki fyrr komin heim áður en ég verð á farandsfæti aftur, búin að bóka flug 29. sept til Íslands og sný svo aftur heim 8. okt.... vonandi að þið fáið ekki leið á mér...
Later

   |