miðvikudagur, maí 21, 2008

Massaði Accounting prófið!!
Nú er ég búin að skrifa inn öll viðtölin, viðtal við markaðsstjóran yfir Skandinavísku Miss Sixty og fyrrverandi markaðsstjóra hjá Levise, það var sko rosaleg kella, búin að eiga rosalegan starfsferil!! við erum að skrifa um Event marketing út frá experiance economy. Svo nú erum við komin á fullt að skrifa, við skilum 6. júní, 60 blaðsíður á tveimur vikum.... jájá, verum bara bjartsýn :)
Annars erum við alveg æsispent yfir Eurovision... eða þannig... hef ákveðið að afsala mér Íslands-titlinum á meðan á þessu stendur, ÁFRAM DANMÖRK!!
Spurning hvort maður haldi Evróvision partý, það er nú enn talað um partýið frá því í fyrra... eða hvort maður skelli sér á Múgison tónleika?! Pæling!

   |