fimmtudagur, maí 29, 2008

Hérna í Höbninni er allt það sama við sig, fóstrurnar og hjúkkurnar eru enn í verkfalli, og eru um allan bæ með matarpakkana sína og syngja... það er voða huggulegt hjá þeim úti í sólinni.
Á meðan sit ég inni og skrifa verkefni í góða veðrinu, það gengur bara vel. Eftir smá hópdrama erum við loksins að komast á rétt spor og reiknum með að ná að klára á réttum tíma... sem betur fer!
Gummi er að fara til Íslands í fyrramálið, Addý er í Berlín og Valdís og Logi eru í Svíþjóð, svo ég verð alein heima í siðmenningunni alla helgina, það er spáð 28 stiga hita og sól, svo þegar ég þarf að kíkja uppúr bókunum reikna ég með að koma mér fyrir á ströndinni!
Sara Jóna var að kaupa flug til mín 6.-8. júní... það verður ekkert smá skvísufjör þá helgi!! Þannig ég verð ekki í afmæli á Austurhluta Íslands þá helgi.
Ég er aftur á móti búin að kaupa mér flug til Íslands, kem morguninn 20. júní og fer aftur í lok ágúst... svo þetta verður lengsta stopp sem ég hef haft á Íslandinu. Helgina 20.-22. júní verðum við þó á ættarmóti hjá Gumma. Helgirnar fyllast hratt hjá okkur svo það er eins gott að láta okkur vita í góðum tíma ef eithvað sniðugt er um að vera, núna eru ca. 4 helgar lausar allt sumarið... kreisí!
Jæja farin að skrifa: justification and elaboration of the research question... vúhú!!
Sí jú sún

   |