Ég endurheimti Gumma minn á laugardaginn.
Í dag höldum við Gummi uppá að vera búin að nenna hvoru öðru í 7 ár og 2 daga, við erum að halda uppá þetta með því að borða pylsur og læra sveitt undir próf!! Það er loksins að koma að því, síðasta prófið bæði hjá mér og Gumma er á morgun, 17. júní, það er vonandi að við rúllum þessu upp... eins og öllu hinu... Við höldum uppá 17. júní og próflok með því að fara í mat til Hrafnhildar og Viðars. Svo á miðvikudaginn höldum við smá kveðjudinner fyrir nánustu hérna í Köben áður en við stingum svo af á föstudagsm0rguninn!!
Það styttist í þetta!!

<< Home