Fataskápurinn, Valkvíðinn og Dramadrotningarnar!!
Gummi á afmæli á morgun!! Við ætlum að fá okkur brunch með frændfólki Gumma og svo erum við með fólk í dinnar "a la Elbagade"... ætli annaðkvöldið endi ekki með smá tjútti, maður veit aldrei.
Í dag byrjaði ég dagin með fundi hjá lögfræðingnum mínum, fengum okkur einn kaffibolla saman, já maður er orðinn svona fansí!! svo ákvað ég nú að það væri kominn tími til að fylla á fataskápinn, þar sem hann er farinn að þjást ansi mikið og ég farin að sjást hallærislega oft í sama dressinu!! og viti menn það tókst, ég læknaðist af þessar verslunarlægð sem ég var komin í og verslaði mér geggjaðar gallabuxur, bilaðan bol og pottþétta peysu... var þetta rím? hljómar allavega eins og músík í mínum eyrum.
Nú er maður búin að fá spennandi fyrirtæki til að vilja fá mig til að skrifa Bachelor verkefnið mitt um, og núna er ég komin með valkvíða af verstu sort og get ekki ákveðið hvað verður mest bitastætt!! Það ætti að leggja mig inn...
Danirnir vara við að maður eigi ekki að fara út nema að það sé lífsnauðsynlegt og að maður sé tilbúinn að hætta lífi sínu!! Fólk spólar af stað og gefur frekar í þegar það er rautt ljós framundan frekar en að stoppa því þeir renna hvort eð er útá gatnamótin.... það er æsifréttaflutningur af þessum 15 cm snjó sem er fallinn, þetta er orðið frekar súrealískt...
En semsagt allt gengur sinn vanagang, Danirnir eru geðveikir, ég blogga á meðan ég er í vinnunni sem er náttúrulega útaf fyrir sig glæpur og Gummi eldist....
Kveðjur úr Vetrarborginni

<< Home