þriðjudagur, febrúar 20, 2007

Á morgun er spáð snjóstormi... það verður nú meira kaásið... bókað að strætó fari í verkfall!!
Þó ég held að danir séu móðursjúkir þegar kemur að snjókomu, kalla allt storm og byrja að salta um leið og spáð er möguleika á snjómkomu, þá sýnist mér í þetta skiptið að þeir séu að spá alvöru snjóstormi, allavega var aumingja veðurfréttamaðurinn í sjónvarpinu afskaplega áhyggjufullur :) Danir eru svo spes... gerir það skemmtilegt að búa hérna!!

Annars er ég bara að skólast, er að reyna að starta Bachelor verkefninu mínu, gengur hægt, en vel... en búin að vinna einn sigur þegar ég fékk undanþágu til að vinna þetta ein!!

Bakaði Bollur í gær... með allt of miklu súkkulaði fyrir Gumma... Berglindi var boðið í bollukaffi en hún skrópaði.

Svo ætlum við nú aðeins að halda kaffiboð á laugardaginn kemur þegar hann Gummi minn verður 26 ára... stór kall sem ég á!!
Jæja, gott í bili

   |