sunnudagur, mars 05, 2006

Dagbók

Í dag erum við Gummi bara búin að vera í afslöppun, eftir viðburðarríkan fyrripart helgarinnar, þar sem við byrjuðum helgina á fimmtudaginn þegar við fögnuðum því með Sigrúnu, frænku hans Gumma, að hún kláraði Masterinn.
Á föstudginn var ég svo í vinnunni og um kvöldið kom Rakel Sif, vinkona hans Gumma úr Verzló. Við borðuðum kvöldmat gúrme a la Gummi. Og skemmtum okkur svo konunglega fram eftir nóttu.
Á laugardagskvöldið fórum við svo í heimsókn til Ingu Rósar og Gulla þar sem foreldrar hennar voru í heimsókn, það var mjög huggulegt.
Í dag er ég svo búin að vera að gera uppbyggilega hluti eins og að slappa af, fara í ræktina, borða harðfisk, tala við familíuna í síman, læra og liggja fyrir framan sjónvarpið.
Á morgun fer ég svo í skólan að undirbúa mig fyrir að opponere á móti einum hóp sem er með mér í fjármálafræði seminar. Ég sé reyndar ekki fram á að það róist neitt á næstunni í skólanum, það er nú alveg fínt að hafa nóg fyrir stafni, svo framarlega sem ég næ að sinna vinnuni. Mér hefur nú tekist þetta hingað til svo ég sé ekkert fram á nein vandamál.
Botomlænið af þessari færslu er að við Gummi höfum það gott, og njótum lífsins!

   |