þriðjudagur, mars 29, 2005

Páskarnir eru búnir að æðislegir, þó fríið hafi verið frekar stutt. Edda og Berglind komu á miðvikudagin fyrir páska, við fórum í mollið, í nýju óperuna, á Dragör, í messu, í bæjarferð, í hjólatúr niður á strönd og við borðuðum allt allt of mikið. En það var yndislegt að kúpla sig aðeins út úr rútínu hversdagsins.
En svo fór Edda aftur til Íslands í gær. Í morgun tókum við Berglind svo á móti hversdagsleikanum með hörku, fórum snemma niðrí skóla að læra. Berglind sat á bókasafninu á meðan ég sat í hópvinnu með hópnum mínum. Svo kom Gummi heim og Berglind fór að taka á móti honum en ég var áfram í skólanum því ég þurfti að halda fyrirlestur, sem gekk vel.
Berglind verður hjá okkur fram á Sunnudag og við ætlum að hafa það gaman saman!! Núna sitjum við í te drikkju (Ætli Berglind hafi smitað okkur af Ensku siðunum sem hún er búin að taka upp...) og horfum á Íslenska Idolið sem Gummi kom með.
adíós

   |