föstudagur, apríl 01, 2005

Við Gummi höfum enn ekki orkað að fá okkur eithvað grænt í íbúðina, eigum langa sögu af sorglegum dauðdögum vegna meðal annars ofvökvunnar. Kolla og Hrannar komu til Kaupmannahafnar um páskana, við kíktum aðeins með þeim útá lífið, það var rosalega gaman og svo komu þau í heimsókn og gáfu okkur rós í potti, okkur til mikillar gleði er rósin enn "sprell alive" og í fullum blóma... við fengum nefninlega að vita að rósin ætti að vera á lífi þegar þau kæmu aftur... við sjáum nú til með það!!!
Kolla og Hrannar, takk fyrir skemmtilega samveru!!

   |