Gærkvöldið var alveg frábærlega vel heppnað. Magga, Bjarni, Agnes, Hjalti og Viðar komu til mín og við borðuðum yfir okkur af Fajitas og afmæliskökum. Svo fórum við í partýleiki sem hristu aftur lífi í okkur. Svo fórum við niður í bæ, Magga, Agnes og ég fórum á Jazz house en strákarnir fóru eithvað annað. Við dönsuðum úr okkur allt vit og fífluðumst þangað til það þurfti að næla buxurnar hennar Möggu saman með hárspennu!! Við urðum vitni að alvöru hópslagsmálum þar sem við urðum næstum undir, sluppum með aðeins bjórsturtu og vaxmeðferð!! En það fór allt vel eftir að Agnes nuddaði allt vaxið af rassinum á mér inná klóseti... ekki spurja mig hvernig hún fór að því að ná því öllu úr!! Já þetta var skrautlegt kvöld og við gleymdum okkur í gleðinni .
Í dag er ég svo búin að fara í ræktina, slappa af, þrífa og læra.
En núna ætla ég að fara að sofa.

<< Home