laugardagur, mars 12, 2005

Þá er kominn tími til að láta heyra í sér, hálf leiðinlegt að hafa aldrei neitt að tala um. Bara skóli skóli skóli... ég vann 1 sólahrings heimaverkefni í stærsta faginu mínu frá fimmtudegi til föstudags, og í næstu viku er ég að fara í próf (verja verkefnið sem ég skilaði í seinustu viku)... svo það er nóg að gera án þess að neitt gerist.... ef þið skiljið hvað ég meina!
En nóg um það, mig langar að bjóða öllum sem þekkja hana Margréti Pétursdóttur góðkunningju mína í afmælið hennar að Elbagötu 17 þann 19. mars 2005, það verður brjálað fjör og mikið gaman, vinsamlegast tilkynnið komu ykkar fyrir 18. mars (þeir sem koma frá öðrum landshluta eða landi :) fá fría gistingu).
Núna erum við Gummi að elda flottan dinner og drekka rauðvín, frekar kósí.

   |