fimmtudagur, apríl 03, 2008

Núna er vorið á leiðinni, á sama tíma og það verður bjartara og hlýrra, leggst yfir mann ómælanlegt stress vegna skólans sem maður er ekki búinn að stunda of ákaft. Ég er búinn að nota tímann minn í skemmtilegri hluti, eins og að fara til Íslands í afmælið hjá Söru P og Tönju, fá bróður minn í heimsókn yfir páskana og að fara til New York með bekknum mínum, þar hitti ég Móu og Ken. Mikið ofboðslega er ég búin að upplifa margt!!


Og þetta er ekki búið, því við Gummi erum að fara til Orlando með Söru og Jónþóri á miðvikudaginn kemur, strákarnir ætla að spila golf á meðan við krúsum um í blæjubílnum og verslum og förum í nudd og pedikjur og náum okkur í smá lit í góða veðrinu!


Ég setti inn myndir frá New York á facebook og myspace, en fyrir þá sem ekki geta séð það set ég nokkrar hérna:




















   |