Það var þá loksins kominn tími til að byrja aftur að taka myndir, ég keypti nefninlega nýja myndavél í síðustu viku. Ég fékk hana í afmælisgjöf í sumar, en druslaðist ekki til að kaupa hana fyrr en núna. Ég setti soldið af myndum inná myspacið hjá mér. Allar myndirnar sem voru í slide showinu á Árshátíðinni eru þarna. Og svo setti ég inn myndirnar frá viðburðum helgarinnar, við fórum á tónleika í gær með Hjaltalín og Sprengjuhöllinni, svo fórum við á nýja hipp og kúl og trendí staðinn og dönsuðum eins og vitleysingar fram eftir morgni. Svo vorum við með bröns í dag í tilefni afmælisins hans Gumma síðustu helgi.
Við Gummi komum svo til Íslands á fimmtudaginn, maður lætur ekki stórviðburði á við 25 ára afmæli vinkvennana framhjá sér fara... nema Sunnu, ég verð víst bara að fá að knúsa hana næst þegar við hittumst!!
Síja!

<< Home