miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Það er kominn tími á nýtt blogg, ég hef ekkert að tala um nema lögfræði, copyright, trademark og personality rights.... en ætla nú ekki að drepa lesendur mína úr leiðindum!
Seinasta helgi var rosalega skemmtileg, Emilía og Patrik komu í heimsókn og við máluðum bæjinn rauðan... eldrauðan!!
Næsta helgi verður minna skemmtileg.... próflestur, rosalega verður gott að komast í gegnum þetta lögfræðipróf, þá verður lífið sko ljúft, bara tvö próf eftir sem eru ekkert stress!!
Hlakka til að koma til Íslands um jólin, það verður gaman að halda jól á gamla mátan heima hjá múttu!! Fyrir þá sem muna það ekki kem ég til Íslands mjög seint 19. des!!
Later....

   |