Við fórum í afmæli til Addýar og Valdísar á föstudaginn, ég var fótboltabulla, stelpurnar voru svartir körfuboltaspilarar með afró og Gummi var surfer... straubrettinu góða sem mamma gaf okkur þegar ég flutti að heiman og sem hún var búin að eiga síðan ég man eftir mér, var fórnað til partýguðanna, þegar Gummi sagaði það í sundur og notaði sem surfboard!!! Fyrirgefðu mamma!!
... semsagt, jólagjöfin í ár: nýtt straubretti!
Í kvöld erum við að fara í heimsókn til Onkel Preben... eða Prebba frænda eins og ég kalla hann. Hann er voða hress, við erum að fara að laga tölvuna hans og elda með honum... hann lofaði að hafa rauðvín og snabs... semsagt svona hygge-aften hjá gömlum frænda.
Næsta vika verður ekkert nema lögfræði lögfræði... nú er bara að massa intelectual property law í byrjun desember, öll kennsla er búin!!

<< Home