þriðjudagur, febrúar 19, 2008

Maður er orðinn svo latur við að skrifa.
Við Gummi fórum í roadtrip til Hamburg þar síðustu helgi, hittum þar Tönju í fullu fjöri. Það er voða gaman að gera stundum eithvað öðruvísi um helgar. Seinustu helgi fórum við í þrítugsafmæli hjá Ingibjörgu frænku hans Gumma og svo fórum við á flóamarkaðinn í Forum með Valdísi og Loga.
Á milli helga stundum við svo skólann eins og vitleysingar.
Hrannar er að koma til okkar í dag, Gummi fer um helgina til Íslands, svo við verðum að fresta afmælinu hans þangað til seinna.
Það er nóg framundan hjá okkur, ég fer til New York vikuna eftir páska, með bekknum mínum. Um miðjan apríl ætlum við, Sara og JónÞór að skella okkur til Flórída saman í smá frí.
Ég hlakka voða mikið til að fá vorið, enda minnir veðrið núna rosa mikið á vorið.
Knúsar

   |