mánudagur, apríl 07, 2008

Helgin er búin að vera róleg og mjög góð.
Það tók mig 2 daga að snúa sólarhringnum rétt eftir New York túrinn!
Eftir hópavinnu á Föstudaginn röltum við Gummi niðrí bæ og höfðum það huggó!
Á laugardaginn skiptum við svo liði, Gummi fékk Viðar, Magga og Andra Snæ í heimsókn til að horfa á fótboltann og ég fór í gönutúr niðrá strönd með Hrafnhildi og Rakel og krökkunum. Andri Snær endaði með að steinsofna í sófanum hjá okkur:














Við enduðum svo öll með að borða kvöldmat saman og spila framá kvöld. Það var rosalega gaman að hitta Rakel og Magga aftur, þau fluttu til Íslands fyrir nokkru. Þetta var í fyrsta sinn sem ég fékk að hitta Mörtu Lukku. Hér er mynd af Magga, Rakel og Mörtu Lukku:














Á Sunnudaginn fórum við svo í brunch með Elvu og Jensu og hittum svo Rakel og Margréti Maríu og röltum með þeim heim á Íslandsbryggju.


Núna erum við bara að gera okkur klár fyrir Flórída Beibí, golf, sól og hamingja!!
Heyrumst næst þegar við komum heim aftur í danska vorið!!

   |