Þessa vikuna voru mamma mín og pabbi í heimsókn. Við áttum góða tíma saman í vorveðrinu þar sem við leigðum bíl og keyrðum um allt. Við fórum í piknik á Bakken:
Við kvöddum Preben, gamla frænda minn, minningarnar af hressa kallinum og sögunum sem hann sagði okkur lifa áfram þó hann sé farinn á betri stað.
Við fórum dagsferð til Halmstad, þar sem Gummi spilaði golf. Við fórum á æskuslóðir pabba, síðan hann var 8 ára og bara nutum þess að vera saman.
Við fórum dagsferð til Halmstad, þar sem Gummi spilaði golf. Við fórum á æskuslóðir pabba, síðan hann var 8 ára og bara nutum þess að vera saman.
Á fimmtudaginn ætlum við svo að bruna niður til Berlínar með Valdísi og Loga, það verður heldur betur fjör!! Ferðasagan í mynum og máli væntanleg eftir viku...
Lifið heil!

<< Home