Í gær bókuðum við Gummi flug til Miami, Florida. Jájá, þann 5. júlí til 20. júlí verðum við á Florida í heimsókn hjá Tönju!! Við ætlum að taka bílaleigubíl og fara á milli staða á meðan Tanja er í skólanum :) Ég hlakka ekkert smá til, þetta verður fyrsta alvöru sumarfríið okkar Gumma saman.
Í kvöld er Rakel að koma til okkar í kvöldmat og hvítvín, það er rosa fínt.
Íris, Inga Rós og Júlli komu í heimsókn í búðina til mín í dag. Gaman að hitta þau, svo annað kvöld ætlum við að hitta þau heima hjá Ingu Rós.En núna verð ég að fara að hafa mig til fyrir kvöldið.

<< Home