sunnudagur, október 28, 2007

Í fyrramálið verðum við komin á vetrartímann/normaltid, það þýðir að það er bara 1 tíma munur á Íslandi og Danmörku.
Veturinn er þó ekki kominn, því núna er hið fallegasta haustveður!

Mamma sendi okkur Mýrina á dvd, við ekkert smá ánægð, höfum nefninlega aldrei séð hana. Við ætlum að hafa hana í mánudagsbíó!! frekar næs!!

Ég komst í jólaskap í dag, fékk Gumma til að syngja nokkur jólalög fyrir mig, hann hlýddi nú, en fannst ég frekar skrítin.

Nóg að gera í skólanum en voða gaman... vorum í Halloween partý í gær... set kannski mynd af mér við tækifæri...
hvur veit....

   |