mánudagur, ágúst 27, 2007

Þá er ég komin út til Danaveldis og skólinn byrjaður, allt komið á fullt.
Ég hef nóg að gera og fíla það í botn... veit ekki hvað er hægt að segja meira um það.
Fór í svona skóla partý á föstudaginn, það var mjög gaman að kynnast öllu, það eru allir svo opnir svona í byrjun skólanáms.
Svo á laugardaginn kíkti ég aðeins út með Emilíu og Patrik.
Núna er það bara harkan sex, ásamt því að fara í ræktina og heimsóknir og klippingu og versla og svona beisik dót.
Ég hef sossum ekki frá neinu að segja, nema Hot Chip, Muse og Mika.... er einhver spentur?

   |