þriðjudagur, júní 05, 2007

Ég veit ég veit... rosa ódugleg við að skrifa!!
Ég er búin að vera að hafa það gott, slappa af, vera í sólbaði og hanga með vinum.
Þess á milli hef ég verið að læra undir próf sem ég er að fara í morgun, fagið sem ég átti eftir í refsingarskyni fyrir að hafa farið til Frakkalands! En á morgun verður það yfirstaðið og þá á ég bara eftir að verja ritgerðina mína, 11. júní... og þá er ég í sumarfríi!!
Svo er sumarfríið mitt slút 1. júlí þegar ég fer til Íslands að vinna í einn og hálfan mánuð. Svo byrja ég í masternum, er að fara í óhefðbundinn master miðað við það sem er ætlast til af manni sem Viðskiptafræðigellu.
Þetta var semsagt snögg yfirlit yfir dagskrána næstu mánuðina...
Hlakka til að hitta alla á Íslandinu góða.
Ingibjörg

   |