Blogg pása búin!
Sumarið er búið að vera æðislegt! Hanga með fjölskyldunni og vinkonunum. Vinna og djamma... svona þetta klassíska.
Svo brutum við þetta aðeins upp með frábærri afmælisveislu, þó ég segi sjálf frá, klikkuðu fimmtudagsdjammi, yndislegri ferð til Egilsstaða og Borgarfjarðar hins eystri, Þjóðhátíðarferð til Vesturmannaeyjanna og síðast enn ekki síst heimsóknum í Borgarfjörðinn hans Gumma.
Þetta er ekki alveg búið enn...
Ég er komin inní námið sem ég var að sækja um; master of social science, managing creative business processes... lengra getur nafnið varla verið!!
Ég fer út 21. ágúst svo nú er bara að njóta þess sem eftir er og hlakka til þess sem framundan er.
Amen

<< Home