Berglind, litla stóra systir mín, á afmæli í dag!!!
En ég þarf ekki að segja til hamingju yfir netið þar sem ég segi henni það bara í persónu þegar ég næ í hana útá völl eftir klukkutíma!
Það er allt að gerast, við erum að fara á Justin tónleika í kvöld... veit ekki hvort við náum að fara á Sankt Hans brennu einhverstaðar á eftir! - En við eigum allavega eftir að missa okkur í gelgjulátum á tónleikunum, enda verðum við ábyggilega í sykursjokki eftir allar kræsingarnar sem við Steinunn hristum útúr erminni í gærkvöldi, súkkulaðikaka, marenskaka og brauðréttur... þetta verður valla flottara!!
Sé ykkur á Íslandi 1. júlí...

<< Home