Rafmagnsleysi = Vonleysi...
Það er alveg ótrúlegt hvað maður er háður rafmagni. Rafmagnið var tekið af í gærmorgun frá kl. 8 til 13, vegna viðgerða. Þegar við Gummi vöknuðum vissum við ekki hvað við áttum við okkur að gera... ég gat ekki hitað hafragraut, ég varð að fara í sturtu í myrkrinu, ég gat ekki blásið á mér hárið, ég sá ekkert þegar ég var að mála mig... þetta var mjög skrýtið, við sátum eiginlega bara og horfðum á veggina, þetta er eiginlega skerí hvað við erum orðin háð því að geta kveikt á tölvunum og sjónvörpum og verið á internetinu.
Ég fór í munnlega prófið í outsourcing strategy í gær, og það virðist ekki hafa haft áhrif á að ég var með óblásið hár, því ég fékk líka þessa fínu einkunn.
Þá er bara 10 dagar í lokaskil á Bachelor verkefninu og allt undir kontról.
Í dag vaknaði Gummi með rosalegan kosninga fiðring, hann var svo svektur að missa af kosningar kaffinu á Íslandi að áður en ég vissi af var hann kominn inní eldhús að baka pönnukökur og hlusta á Hauk Morteins... ég vildi að ég hefði tekið þetta uppá video fyrir ömmur hans. En pönnukökurnar eru alveg afbragðs góðar, og ég nýt góðs af þeim í verkefnaskrifunum.
Í kvöld förum við í afmæli til Jónínu, það verður partý með Eurovision og kosningar þema.
Ég sendi Gumma út í góða veðrið að kaupa afmælisgjöf, það verður spennandi að sjá hvað hann kemur með heim :)

<< Home