mánudagur, mars 08, 2004

Það var EKKERT að gera í vinnuni í dag en sem betur fer vorum við margar að vinna svo við stóðum bara og fífluðumst. Svo átti ég snemma frí þ.e.a.s. kl. 16 þá fór ég niðrí skóla að spurja nokkurra spurninga um umsóknina mína og svo fór ég út að versla rólu handa Dollí, fuglinum hans Snorra Freys. Dollí hefur nefninlega verið svefnlaus í dágóðan tíma þar sem svona rólur eru uppseldar á íslandi og rólan virðist vera eini staðurinn sem hún getur sofið á... aumingja Dollí......

   |