Þessi helgi er búin að vera góð sófar, ég átti frí frá vinnu svo við Gummi ákváðum að gera eithvað saman. Við erum nefninlega ekki búin að hafa mikin tíma til að gera stuff saman. Ég vinn laugardaga þegar hann á frí og ég á frí þega hann er í skólanum. Svo við ákváðum að stinga af, fara til útlanda!! Við eyddum heilum Laugardegi í að ganga um götu og garða Malmö-borgar í Svíþjóð. Það var mjög gaman að gera eithvað öðruvísi. Alveg ótrúlega auðvelt að komast á milli, tekur ekki nema um 40 mín. En þegar við komum heim þá vorum við orðin svo gegn-köld að við ákváðum að eyða kvöldinu undir flísteppi fyrir framan sjónvarpið með tölvuna í fanginu. Það er alveg ólýsanlega þægilegt að vera með þráðlaust internet, og auðvitað sítengingu.

<< Home