Fields (stærsta shopping center á norðurlöndunum) opnar næsta þriðjudag. Það ríkir mikil spenna í vinnuni hjá mér, en Gummi er ekki eins spenntur. Mollið er nefninlega mjög vel staðsett þ.e.a.s. ekki langt frá okkur!! Þetta verður spennandi að sjá. 115.000 m2 af rými með yfir 150 verslunum og veitingarstöðum. Þar að auki er 3.000 m2 fitnesscenter með sundlaug með útsýni. Og svo er risa barnaland með rúsíbönum og umferðarskóla, ekki það að maður þurfi neitt á því að halda. Bara að gefa ykkur hugmynd um hversu rugl stórt þetta verður. Það verður spennandi að fara að sjá þetta!!

<< Home